Bonjour!
Við Spánarbúarnir erum komnar heim eftir þrjá voða huggulega daga í París.
Þrjá kalda daga líka! Brr..
Ferðin var
auðvita mynduð frá A til Ö, enda ekki á hverjum degi sem bakgrunnurinn er
Eiffel turninn, Notre Dame eða Louvre. Ég ætla því að leyfa brot af þeim mörg
hundruð myndum sem voru teknar að segja ferðasöguna…
Dagur 1
![]() |
| Fyrsta stopp var Sacré Cæur |
| Stærðin á þessari borg er mun meiri en við gátum ímyndað okkur |
![]() |
| Moulin Rouge Gatan sem við löbbuðum til að komast að þessum sögufræga klúbbi er gjörsamlega þakin kynlífsbúðum! Ágætlega sjabbí það.. |
Næst var það sjálfur Eiffel...
Við eyddum nokkuð mörgum klukkutímum í að dást bæði að turninum sjálfum og útsýninu sem hann býður upp á þegar upp á 2. hæðina er komið.
![]() |
| Útsýnið var svo sannarlega ekki af verri endanum á fyrstu hæðinni! Haustlitir og sólsetur! |
![]() |
| Sú ofthrædda sátt með að vera hálfnuð upp! |
![]() |
| Sáttastar komnar á 2. hæð! |
![]() |
| Útsýnið þaðan er topp nice! |
P.s að vera á leiðinni upp í ljósaskiptum er toppurinn!
Dagur 2
| Við afrekuðum það að eiga selfie af okkur við alla helstu túristastaði borgarinnar! Selfie er í tísku er það ekki annars? |
![]() |
| Ein lítil dama ákvað að photobomba mig þarna fyrir aftan og stela senunni með þessu fína pósi sínu |
![]() |
| Lásabrúin |
![]() |
| ...já og auðvita selfie á lásabrúnni ;) |
| "hæ, þið þarna niðri" |
![]() |
| Við semsagt náðum báðar næstum því að tylla puttanum á toppinn á Louvre... |
![]() |
| Komnar á leiðarenda: Arc de Triomphe |
![]() |
| Vanalega er ekki risa fáni í miðjunni og búið að stilla upp kömrum og girðingum skilst mér... Þarna voru einhver hátíðarhöld og sjónvarpsútsending á dagskrá um kvöldið. |
Dagur 3
Síðasti dagurinn var ótrúlega lítið skipulagður hjá okkur. Virkilega þægilegt að eiga einn dag án þess að vera með planaða dagskrá.
![]() |
| Byrjuðum við Pompidou safnið. Hverfið þar í kring er krúttlegt og nice! |
![]() |
| Franskur lunch á mjög svo frönskum stað... Auðvita varð crépes fyrir valinu! |
![]() |
| Lúxemborgargarðurinn í 6. hverfi Parísar er æði! |
| Auðvitað var komið við í Laudrée og tekið nokkrar makarónur með í lautarferð... |
![]() |
| Það er haustlegt í París þessa dagana. Haustdagar er eitthvað sem ég var búinað sakna! Snögg hætti þó við að sakna haustsins þegar ég fann kuldan sem fylgir því! |
Au Revour!
Þetta er semsagt sirka 1% af myndum ferðarinnar ;)
Ég þurfti að hemja mig að setja ekki fleiri
Þrátt fyrir að París sé æði þá komumst við að því hvað elsku borgin okkar er topp næs! Topp 3 kostirnir sem Barcelona hefur fram yfir París: Hreinni, hlýrri og ódýari! Metro kerfið í París er heldur ekkert upp á marga fiska!
Hér í Barce er þó líka farið að kólna. Við sitjum hér í kuldanum með sæng ofan á okkur, kappklæddar, í ullarsokkum og með rautt nef af kulda! Okei hér er kannski smá dramatík í gangi. Hér eru enn 16 gráður úti en ég er ekki að ljúga því að okkur er skít kalt hér inni. Hvernig stendur á því að það er heitara úti en inni skil ég ekki... við þurfum líklega að fara að splæsa í kyndingu!
Við eigum enn 4 daga eftir í fríi þar til næsta skólatörn byrjar. Á föstudaginn fáum við heimsókn yfir helgina svo þessir 4 dagar eiga eftir að líða hratt! :)
Þar til næst...
Eydís
x
































