23.9.14

Lífið í Barce seinustu daga



Jæja elsku þið- alveg komin tími til að heyra frá okkur (þó að við höfum alls ekkert verið slakari á Snapchat eða Instagram kv. pirrandi gellurnar í Barcelona) 

En lífið er sko búið að leika við okkur seinustu daga, fengum heimsókn á föstudaginn frá ma&pa (Birnu) og er búið að tríta okkur eins og prinsessur seinustu daga. Mjög gaman að fá heimsókn og upplifa túristann eins og hann gerist bestur, erum búin að labba útum allt og loksins farnar að þekkja borgina betur. Rötum allavega á Römbluna og niður á strönd (þarf eitthvað meira?) 


Yndislegu gestirnir okkar á krúttlegri hliðargötu í Barri Gotic hverfinu



Seinustu dagar hafa því farið í mikla göngutúra, búðarráp og svo kíktum við á handboltaleik og sáum okkar mann Guðjón Val keppa þar sem Barcelona sigraði að sjálfsögðu. Mælum hiklaust með því að fara á handboltaleik ef þið eigið leið til Barcelona, mikið ódýrara en fótboltaleikirnir (rúmlega 10 evrur) og mikil upplifun.





Gott útsýni hjá okkur- Sátum fremst og vorum án efa bestu klappstýrurnar (ÁFRAM GUÐJÓN) 

Við erum vel búin að njóta þess að vera í fríi, kíktum samt á skólann til þess að koma okkur aðeins í gírinn þar sem það eru rúmar tvær vikur í að hann byrji.


Sambýliskonurnar fyrir utan innganginn á skólanum (Hann nota bene er á Römblunni og H&M og allar búðirnar í næstu götu obbosí) 


Þarna má svo sjá krúttlega bakaríið okkar sem er beint fyrir neðan íbúðina (já við komum feitar heim) 



Endum þetta svo á einni af ströndinni

Adios og þangað til næst 

xx
- Birna & Eydís senjoritur


18.9.14

Mættar til Barcelona


Jæja ævintýrið okkar er hafið! Svo við göngum ekki endanlega frá öllum okkar vinum á facebook, instagram og snapchat ætlum við að halda úti smá bloggi svo þeir sem hafa áhuga á geta fylgst með okkur næstu mánuðina.

Við stöllur erum semsagt mættar hingað til Barcelona. Það leit reyndar út fyrir það í nokkrar mínútur í Leifsstöð að við kæmumst ekki hingað á réttum tíma þegar við heyrðum kallað í kallkerfið: "Tveir síðustu farþegar á leið til Barcelona, vinsamlegast drífið ykkur að hliði 8." Ferðin byrjaði semsagt rosa vel!

En hingað komumst við þó og fengum lyklana af íbúðinni okkar afhenta fljótlega eftir lendingu. Íbúðin er svo fín! Mun flottari og betri en við þorðum að láta okkur dreyma um. Hér er smá sýnishorn:

Gangurinn

Stofan okkar

Skipulagsdagatalið okkar inní eldhúsi

Svalirnar eru okkar allra mesta uppáhald

Eyddum fyrsta deginum okkar hér í skoðunartúr. Ó hvað fæturnir okkar fengu að bera okkur langt þann dag! Misreiknuðum stærð borgarinnar örlítið. Skemmtilegasta uppgötvun skoðunartúrsins var að komast að því að hverfiskirkjan okkar er þessi hér: 

Selfie við Sagrada Familia

Við getum ekki sagt að lífið sé flókið þessa dagana… erum að koma okkur fyrir, kíktum aðeins í mallið í gær og eyddum svo deginum í dag á ströndinni og rölt meðfram snekkjuhöfninni.



30 - 35 gráðurnar eru eitthvað sem við þurfum að venjast aðeins betur. Sérstaklega þegar kemur að því að fara að læra og mæta í skólann í þessum hita… það verður eitthvað fjörið!

Þar til næst… 
Senjoríturnar 
Birna & Eydís
xx