5.10.14

Meistaramánuður hafinn!

Já gleðilegan meistaramánuð - nóg af hollustunni hér!

Nei, nei við ætlum ekki að borða eingöngu hollt eða sleppa því að drekka sangríur og bjór þennan ágæta októbermánuð. Bara síður en svo! Okkar meistaramánuður einkennist af því að við byrjum Meistaranámið okkar á morgun. Það er mikil gleði og tilhlökkun með það hér á bæ! Letilífið og strandferðirnar fá smá hvíld og skólabækur og rútína tekur við. Það verður ágætis tilbreyting, svona í einhvern tíma. Það líður örugglega ekki langur tími þó þar til við verðum farnar að þrá strandar- og letilífið aftur ;)

Ég ætla að leyfa eftirfarandi myndum að segja frá lífi okkar hér síðastliðna viku...

Við skelltum okkur í útihlaup fyrsta dag mánaðarins...

...og æfingar á stofugólfinu

Hér er pínu hallæri í gangi þar sem við getum ekki fengið ræktarkort án bankareiknings, engan bankareikning án dvalarleyfis og dvalarleyfið er enn óklárað! Vesen!

...verðlaunuðum okkur svo með þessum dýrindis Strawberry Daiquiri!





Töfragosbrunnurinn (Font Magica) bauð upp á ansi fínt ljósashow á fimmtudaginn

Reglulegar strandaferðir hafa verið á dagskránni síðastliðnar vikur (sorry snöppin)...

...í einni þeirra urðu berrassaðir gamlingjar algeng sjón! 

Það virðist vera að Barceloneta ströndin breytist í hálfgerða nektarströnd þegar nær kemur W byggingunni! Fullt, fullt af fólk sem sýnir meira en góðu hófi gegnir! ...Fyrir áhugasama ;)

Morgunstundirnar á svölunum geta verið voða huggulegar

Á mörkuðunum má finna allskyns hnossgæti...

...og súkkulaðifíklarnir við í essinu okkar!

Þessi bás fær þó vinninginn! Þvílíkar kræsingar!!

Vínkonur

Skulum enda þetta á sunnudagsbrönsinum okkar frá því í morgun! 
Sunnudagar eru lúxusletidagar hér á Carrer de Mallorca!

Í dag var semsagt síðasti frídagurinn okkar í bili og hann var heldur betur nýttur í leti. Rise and shine í fyrramálið og mæting í skólann! Þið farið eflaust að fá buguð skilaboð fá okkur innan tíðar.

Þar til næst..
Eydís

No comments:

Post a Comment