Jæja ævintýrið okkar er hafið! Svo við göngum ekki endanlega frá öllum okkar vinum á facebook, instagram og snapchat ætlum við að halda úti smá bloggi svo þeir sem hafa áhuga á geta fylgst með okkur næstu mánuðina.
Við stöllur erum semsagt mættar hingað til Barcelona. Það leit reyndar út fyrir það í nokkrar mínútur í Leifsstöð að við kæmumst ekki hingað á réttum tíma þegar við heyrðum kallað í kallkerfið: "Tveir síðustu farþegar á leið til Barcelona, vinsamlegast drífið ykkur að hliði 8." Ferðin byrjaði semsagt rosa vel!
En hingað komumst við þó og fengum lyklana af íbúðinni okkar afhenta fljótlega eftir lendingu. Íbúðin er svo fín! Mun flottari og betri en við þorðum að láta okkur dreyma um. Hér er smá sýnishorn:
Gangurinn
Stofan okkar
Skipulagsdagatalið okkar inní eldhúsi
Svalirnar eru okkar allra mesta uppáhald
Eyddum fyrsta deginum okkar hér í skoðunartúr. Ó hvað fæturnir okkar fengu að bera okkur langt þann dag! Misreiknuðum stærð borgarinnar örlítið. Skemmtilegasta uppgötvun skoðunartúrsins var að komast að því að hverfiskirkjan okkar er þessi hér:
Selfie við Sagrada Familia
Við getum ekki sagt að lífið sé flókið þessa dagana… erum að koma okkur fyrir, kíktum aðeins í mallið í gær og eyddum svo deginum í dag á ströndinni og rölt meðfram snekkjuhöfninni.
30 - 35 gráðurnar eru eitthvað sem við þurfum að venjast aðeins betur. Sérstaklega þegar kemur að því að fara að læra og mæta í skólann í þessum hita… það verður eitthvað fjörið!
Þar til næst…
Senjoríturnar
Birna & Eydís
xx




No comments:
Post a Comment